- Elkem
- About Elkem
- Our Worldwide Presence
- Iceland
- Elkem Iceland
- Fréttir
- Elkem gangsetur ofn 2 eftir endurbætur
Elkem gangsetur ofn 2 eftir endurbætur

Endurbótum á ljósbogaofni í kísilmálmverksmiðju Elkem á Íslandi á Grundartanga er lokið og áætlað er að ofninn verði endurræstur miðvikudaginn 7. Maí . Ofninn er einn af þremur í verksmiðjunni og gera áætlanir ráð fyrir framleiðslu á kísilmálmi í ofninum næstu 15 til 20 árin. Elkem á Íslandi framleiðir hágæða kísilmálm og fer megnið af honum í rafmagnsstál og annan búnað sem bætir orkunýtingu rafmótora, t.d. í rafbílum og vindmyllum sem gerir framleiðsluvörur fyrirtækisins mikilvæg fyrir þau orkuskipti sem heimurinn stendur í dag frammi fyrir í dag.
Íbúar verða varir við útblástur
Íbúar og starfsfólk í fyrirtækjum í grennd við Grundartanga og víðar verða varir við útblástur frá fyrirtækinu í allt að tíu daga eftir gangsetningu. Ekki er ástæða til að óttast útblásturinn en sjónmengun er fyrirséð. Elkem á Íslandi biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem endurræsingin kann að valda og er fólk hvatt til að hafa samband vakni einhverjar spurningar, annað hvort í síma 432 0200 eða í tölvupósti á netfangið [email protected].